Súkkulaðigrams
Alveg syndsamlega gott, en ótrúlega einfalt. Í þetta má nota hvað sem er, það eina sem þarf er súkkulaði og svo allskonar grams með. Í þetta skipti átti ég smá brjóstsykur og sykurpúða afgangs frá matargerðarævintýrum um áramótin. Í þetta má alveg eins setja muldar kexkökur eins og piparkökur eða mjólkurkex, nokkrar brotnar saltstangir eða saltkringlur, salthnetur eða saxaðar karamellur, þurrkaða ávexti eða gróft sjávarsalt ofan á. Hvað sem þér dettur í hug!
Bara láta hugmyndaflugið fara á fullt, róta í skápum og skúffum og skoða hvað er til.
-
Súkkulaðigrams
- 3 plötur súkkulaði
- 10 sykurpúðar
- 2msk rjómi
- 12-15 möndlur/hnetur
- 2msk rifinn kókos
- 4 bismark molar
Tími í ísskáp: 1 klst +
Byrjaðu á að brjóta súkkulaðiplöturnar í skál, bræddu súkkulaðið í vatnsbaði eða í örbylgju, ég notaði Siríus Konsúm.
Passaðu að brenna ekki súkkulaðið, það er oft gott að slökkva undir því áður en það er fullbráðnað og láta hitann í skálinni sjá um að bræða það alveg. Eins er nauðsynlegt að láta ekkert vatn komast í súkkulaðið, þá breytist það í ægilegan klump og er ónýtt.
Skerðu sykurpúðana í litla bita og settu með rjómanum í pott á lágan hita, bræddu þetta vel saman, það gæti verið að þú þurfir aðeins meiri rjóma, þetta verður svakalegt klístur!
Grófsaxaðu möndlurnar og hneturnar og brjóttu brjóstsykurinn. Ég setti hann í poka og barði vel á honum með kökukefli.
Nú þarftu að byrja að setja þetta allt saman.
Spreyjaðu smá olíu á bökunarpappír og helltu þunnu lagi af súkkulaðinu á í um 25x25cm stóran flöt, dreifðu þá möndlunum og hnetunum yfir, stráðu kókosmjölinu yfir og dreifðu úr bráðnu sykurpúðunum eins vel og þú getur.
Þeir eru svo svakalega klístraðir að ég endaði á að hella þeim í einhversskonar bunu sikk-sakk yfir allt saman í stað þess að reyna að smyrja þessu yfir allt.
Þegar það er búið þá seturðu afganginn af súkkulaðinu yfir allt saman og stráir brjóstsykursmolunum yfir og örlitlu af kókosflögum.
Þetta er svo sett í ísskáp og látið storkna í um 1 klst eða lengur. Það má örugglega setja þetta í frysti til að flýta fyrir. Þegar þetta er storknað þá flettirðu bökunarpappírnum af og skerð þetta í góða bita.
Njóttu vel!
Ég get staðist allt nema freistingar. – Oscar Wilde

