Kryddmöndlur
Sykraðar, saltaðar, kryddaðar, með hnetum eða einar sér. Ómótstæðilegar.
Það er hægt að útbúa kryddhnetur og möndlur á margan hátt og hér að neðan eru nokkrar mismunandi aðferðir.
Möndlurnar geymast vel í loftþéttu íláti í allt að 1 viku.
-
Hunangsristaðar möndlur
- 500gr heilar möndlur í hýði
- 2tsk kanill
- 1tsk vanilludropar
- 2msk hunang
- smá salt
- ólífuolía
Blandaðu saman í skál möndlum, salti og 1-2 msk ólífuolíu. Hrærðu þessu vel saman þar til olían þekur möndlurnar.
Bættu nú við 1 tsk af kanilnum, vanillunni og hunanginu og hrærðu vel.
Sett á bökunarpappír í ofnskúffu og bakað í 10 mínútur. Tekið svo út úr ofninum og látið kólna, sett aftur í skál og hinni teskeiðinni af kanilnum bætt út í, hrært vel saman aftur.
-
Mexíkóskar súkkulaðimöndlur
- 500gr heilar möndlur í hýði
- 3 msk hlynsýróp
- 2 msk púðursykur
- 1 tsk salt
- 1/2 tsk cayenne pipar
- 1/4 tsk kanill
- 1 1/2 msk kakóduft
Blandaðu saman hlynsýrópi, púðursykri, salti, cayenne og kanil í pott og hitaðu yfir meðal hita þar til suðan kemur upp. Bættu þá möndlunum saman við og láttu malla í 3 mínútur. Hrærðu stöðugt í.
Helltu möndlublöndunni á bökunarpappír og dreifðu vel úr. Baka þetta í miðjum ofni þar til möndlurnar verða dökkbrúnar, eða um 20 mínútur.
Fylgstu vel með, það er ansi þunn lína á milli rétta brúna litsins og brunarústa! Þegar þér finnst möndlurnar hafa bakast nægilega tekur þú þær út úr ofninum og lætur kólna alveg.
Settu kakóduft í poka, möndlurnar í pokann og hristu hann vel til að blanda kakóduftinu vel á möndlurnar. Njóttu!
-
Kryddaðar möndlur
- 500gr heilar möndlur í hýði
- 1 msk ólífuolía
- 1tsk cumin, malað
- 1tsk paprikuduft
- 1/3 tsk salt
- 1/3 tsk cayennepipar
Settu möndlur, olíu, cumin, paprikuduft, salt og caeyenne pipar í skál og blandaðu vel saman. Dreifðu úr þessu á bökunarpappír á ofnplötu og bakaðu í ofni þar til léttristað, eða 25-30 mínútur. Láttu kólna alveg.
