Greipdrykkur 1L
- 1 rauður greipávöxtur
- 3msk sykur
- 750ml sódavatn
Undirbúningstími: 5 mínútur
Skerðu ávöxtinn í tvennt og kreistu allan safa úr honum í könnu, settu eitthvað af aldinkjötinu með, best er að rífa það niður.
Bættu sykri í og hrærðu vel, þú mátt nota hvaða sætu sem þú vilt eða sleppa henni.
Settu í glas, bættu klaka í og fylltu upp með sódavatni. Þú getur sett út í þetta myntulauf eða sítrónumelissu, mér finnst greipávöxturinn svo góður að ég kýs að hafa bara bragðið af honum.
Frábært eftir morgunmatinn.