Engiferdrykkur
Engiferdrykkur
- 150gr engiferrót
- 4 msk hunang eða agavesýróp
- 3 sítrónur
- 1-1.5 L sódavatn
Rífðu engiferrótina í grófu rifjárni eða í matvinnsluvél, það þarf ekki að flysja hana heldur bara skola hana vel. Allt gumsið er sett í stóra skál.
Taktu nú gula börkinn utan af 2 sítrónum með grænmetisflysjara(passa að hafa ekkert hvítt með) og settu yfir engiferinn í skálinni.
Bættu svo hunanginu/sýrópinu við og stappaðu vel saman í um 10 sekúndur til að blanda bragðinu saman.
Þá er hellt yfir þetta 1L af sódavatni og láta standa í 5-8 mínútur. Þá má smakka til, ef of súrt, þá meira hunang/sýróp, ef of sætt, þá meiri sítrónusafa.
Sigtaðu þetta í gegnum gróft sigti í könnu, settu fullt af klaka og smá ferska myntu með eða sítrónumelissu, og fylltu upp með meira sódavatni ef þarf.
