Góð fita
Fita er lífsnauðsynleg.
Við þurfum fitu til þess að líkaminn geti starfað eðlilega.
Hún er nauðsynleg til að framleiða hormóna, halda liðunum mjúkum, hamla bólgum og mýkja húð og hár.
Við þurfum líka fitu til að brenna fitu, þannig að ef einhver vill gjarnan grenna sig, þá þarf sá hinn sami á góðri fitu að halda.
Þetta þarf þó að vera rétta fitan, það er að segja, lífsnauðsynlegar ómega fitusýrur.
Þetta eru olíur sem eru unnar til dæmis úr hörfræum, sólblómafræum, graskersfræum, ólífum, hnetum og fl.
Það er nauðsynlegt að þessar olíur séu kaldpressaðar, úr gæða hráefni.
Þannig er virkni þeirra best.
Þessar góðu olíur fást í miklu úrvali og um að gera að finna sína uppáhalds.
Þær er hægt að nota út á salöt, hella þeim yfir mat eftir að hann er eldaður eða hreinlega taka þær inn, sem hvert annað bætiefni.
Það má ekki hita kaldhreinsaðar olíur, þá skemmast þær og nýtast ekki líkamanum sem skyldi.
Með kveðju, Inga
Hér getur þú heimsótt Ingu næringarþerapista á Facebook síðunna hennar
