allskonar.is

Ljúffengar flatkökur
Mér finnst alveg nauðsynlegt að gera flatkökur með indverskum eða afrískum mat, eða með súpum og baunaréttum.

Þær eru frábærar með fersku grænmeti skornu í stykki til að dýfa í hummus, góðar með osti eða grænmeti, sem vefjur, sem hádegismatur, meðlæti með kvöldmat eins og baunapottrétti og áfram mætti telja.

Hér er uppskrift af mjög seðjandi flatkökum, þessar eru frekar stórar, eins stórar og pannan þín leyfir og er reiknað með einni köku á mann. Það tekur tæpar 2 klst að gera þessar kökur frá byrjun til enda því deigið hefast í tvennu lagi en það tekur enga stund að grilla kökurnar.

Flatkökur f. 4

1 msk kóríanderfræ

1/2 dl vatn

1 1/2 dl hrein jógúrt

1 1/2 tsk þurrger

300 gr hveiti (þú getur notað hvaða mjöl sem þú vilt)

1 msk salt

2-4 msk olía

Ristaðu kóríanderfræin á þurri pönnu við góðan hita í 1-2 mínútur, þar til þau verða gullinbrún. Malaðu þau og settu í pott, í pottinn seturðu vatnið og lætur suðuna koma upp. Slökktu strax undir og taktu pottinn af hellunni.

Settu jógúrtina í skál og bættu gerinu út í. Hrærðu vel saman

Bættu nú kóríandernum og vatninu út í jógúrtið og hrærðu hratt og vel saman.

Því næst seturðu 100gr af hveiti út í jógúrtblönduna og hrærir vel saman, hér getur verið gott að nota hendurnar.
Legðu nú viskustykki yfir skálina og settu hana á hlýjan stað og láttu þetta hefast í 25 mínútur

Eftir 25 mínútur tekurðu deigið og bætir salti, 2 msk af olíu og 200gr af hveitinu saman við og hnoðar vel svo að blandist vel saman. Þetta er sett í skál undir stykki og látið hefast í 1 klst.

Taktu nú deigið úr skálinni og hnoðaðu það létt í 1 mínútu.

Skiptu deiginu í fjóra jafna hluta. Taktu hvern hluta og flettu út í hringlaga köku, jafnstóra og pannan sem þú ætlar að nota til að steikja kökurnar á.

Hitaðu pönnuna við meðalhita og penslaðu þá hlið á kökunni,  sem þú ætlar að láta snúa niður í pönnunni, með olíu. Steiktu kökuna á pönnunni í hálfa til 1 mínútu á hvorri hlið, mundu að pensla kökuna áður en þú snýrð henni. Hér dugar best að nota augun, þú vilt ekki brenna kökurnar en heldur ekki hafa þær hráar. Horfðu eftir fallega brúnum lit á kökunum.

Linsupottréttur með döðlum
Dásamlega bragðmikill pottréttur innblásinn af Norður-afrískri matargerð, með rauðum linsubaunum og þurrkuðum ávöxtum, kryddaður en sætur, ódýr og einfaldur.

Linsupottréttur fyrir 4

3 apríkósur

8 sveskjur, steinlausar

rifinn börkur af 1 lime

safi úr 1 lime

1 tsk púðursykur

1 msk cuminfræ

1 msk olía

1 lítill laukur, fínsaxaður

1 hvítlauksrif, marið

7 cm engiferrót, rifin

250 gr rauðar linsubaunir

2 lárviðarlauf

900ml grænmetissoð

100 gr döðlur, saxaðar

Undirbúningstími: 25 mínútur

Eldunartími: 45 mínútur

Settu apríkósurnar, sveskjurnar, limebörkinn og limesafann og púðursykurinn í matvinnsluvél eða mortél og búðu til mauk. Settu til hliðar.

Láttu pönnu á góðan hita og þurrsteiktu cuminfræin þar til þau fara að ilma vel, athugaðu að þau geta brunnið hratt, fylgdust vel með. Settu þau til hliðar.

Hitaðu nú olíuna á pönnu og steiktu laukinn og hvítlaukinn í 3-4 mínútur eða þar til laukurinn verður glær og mjúkur.

Bættu þá við engiferrótinni og steiktu í 1-2 mínútur í viðbót. Hrærðu vel í á meðan.

Nú malarðu cumin fræin og setur út í pönnuna, bætir svo við linsubaununum, lárviðarlaufunum og soðinu. Hrærðu sveskjumaukinu vel saman vaið og láttu þetta allt sjóða í um 25 mínútur eða þar til linsubaunirnar eru soðnar.

Döðlunum er nú bætt í og hrært vel, láttu þetta malla allt í 2-3 mínútur í viðbót.

Berðu fram með baunaspírum eða ferskum kóríander, granateplafræjum eða ferskri myntu, og heimagerðum flatkökum.

Þú getur geymt granateplafræ í frysti.
Best er að ná fræjunum úr ávextinum með því að skera hann í 4 hluta. Fylltu nú skál með köldu vatni og brjóttu fræin úr ávextinum. Þau sökkva til botns á meðan aðrir hlutar ávaxtarins fljóta og auðvelt að veiða þá upp úr. Þerraðu svo fræin og settu í plastpoka inn í frysti.
Nú áttu fersk granateplafræ þegar þér hentar.

Blómkáls- og rófupickle
Þetta pickle sækir bragðið í pakistanska matargerð, einfalt en bragðmikið og passar vel með grænmetis- og baunaréttum.

Það sem er frábært við þessa uppskrift er að þetta kostar lítið sem ekkert en er alveg meiriháttar að eiga til að bera fram með mat og koma fólki á óvart, svo má nota í þetta íslenskt grænmeti.

Þetta pickle má líka borða strax, það þarf ekki að lagerast í einhvern tíma fyrir átu, og því fljótlegt að búa til þegar þig langar í.

Blómkáls- og rófupickle

3msk hrásykur

150ml eplaedik

100ml olía (ólífu, hnetu eða repju)

1 hvítlauksrif, marið

1 tsk rifin engiferrót

200gr blómkál, tekið í sundur

3 gulrætur, í bitum

100gr gulrófur í bitum

2msk brún sinnepsfræ, möluð

1msk salt

1/2 tsk chili duft

1tsk paprikuduft

1/2tsk garam masala

Undirbúningstími: 30 mínútur

Eldunartími: 15 mínútur

Settu sykur og edik í pott á lágan hita og hrærðu vel í á meðan að sykurinn leysist upp, þá má slökkva undir pottinum.

Helltu olíunni í stóra pönnu á meðalhita og steiktu hvítlaukinn og engiferinn í hálfa mínútu þegar olían er orðin heit. Bættu þá á pönnuna blómkálinu, gulrótunum og rófunum og hrærðu vel svo að grænmetið verði þakið í olíu. Lækkaðu undir pönnunni og settu kryddið yfir og blandaðu vel saman. Því næst hellirðu ediks-sykurblöndunni yfir og hrærir vel.

Taktu pönnuna af hitanum og leyfðu öllu að kólna.

Þetta er sett í stóra krukku (1-2 krukkur) og ediki og olíunni úr pönnunni hellt yfir.

Það er hægt að borða þetta strax en þetta má geyma í ísskáp í allt að 1 mánuð.

„Sjáðu tindinn…“
Fjallgöngur og útivist eru að verða vinsælli með hverju árinu. Enda ekki skrítið, því fyrir utan að vera holl og ódýr hreyfing erum við Íslendingar svo heppnir að eiga land sem beinlínis kallar á að við ferðumst um það.

Fyrir þá sem hafa lítið eða ekkert látið til sína taka á þessu sviði er kannski dálítið ógnvekjandi að í fjölmiðlum birtast viðtöl við fólk sem hefur klifið hæstu fjöllin, farið á flesta tinda eða verið fljótast á einhverja þeirra. Fyrir byrjendur geta fjallgöngur litið út eins og keppnisíþrótt.

Þeir eru auðvitað til sem hafa sökkt sér á bólakaf í útivist og hafa slíkt keppnisskap að þeir setja sér slík háleit og hetjuleg markmið til að ögra sjálfum sér. En við hin erum engu að síður í yfirgnæfandi meirihluta. Við sem göngum á fjöll í nágrenni okkar þegar veður og tími leyfa, og kíkjum einstaka sinnum lengra í burtu til að skipta um útsýni og prófa nýjar hlíðar.

Fyrir okkur er það ekki endilega tindurinn eða tíminn sem skiptir máli, heldur það að vera úti í náttúrunni í hreinu lofti að gera eitthvað sem við njótum. Við snúum kannski við í miðri brekku, ef við erum þreytt eða þurfum að koma heim á ákveðnum tíma. Við förum á okkar hraða, stoppum eins oft og okkur langar og förum jafnvel á sama fjall oft í röð.

Fjallgöngur eru ekki keppnisíþrótt, en eitt af því skemmtilegasta við þær er að hver og einn getur hagað þeim eftir sínu höfði. Það skiptir ekki máli hvort þú vilt fara hratt eða hægt, lágt eða hátt. Aðalmálið er að reima á sig skóna og drífa sig út í náttúruna.

Þar er pláss fyrir okkur öll.

Góða ferð!

Elín og Helen

Höfundar „Góða ferð – handbók um útivist“

Ferskur ostur
Það er einfalt að búa til ferskan ost heima og það þarf ekki sérstakan ostahleypi eða tæki til. Allt sem við þurfum er mjólk, sýrður rjómi eða súrmjólk og sítrónusafi, það þarf ekki sérstakan hitamæli heldur því þessi uppskrift er svo einföld.

Ferskur ostur

1L nýmjólk

4 msk sýrður rjómi

2 msk sítrónusafi

1/2 tsk sjávarsalt

Eldunartími: 15 mínútur

Sigtun: 2-3 klst

Settu mjólk, sýrðan rjóma, sítrónusafa og salt í pott.

Láttu suðuna koma upp hægt og um leið og byrjar að sjóða þá lækkarðu nægilega til að hitinn haldist en sjóði ekki í pottinum.

Svona á þetta að malla í 15 mínútur. Þetta fer allt að hlaupa og ysta, sem er akkúrat það sem við viljum.

Klæddu nú sigti að innan með grisjuklút og helltu úr pottinum í sigtið. Ef þú vilt þá geturðu haldið eftir vökvanum sem rennur undan og notað hann í bakstur í staðinn fyrir mjólk.

Ekki láta koma þér á óvart hversu lítið verður eftir í sigtinu, hver arða af ostinum er dásamlega flauelsmjúk og algerlega verksins virði.

Láttu ostinn sitja í grisjunni í sigtinu í 2-3 klst og taktu svo og hnoðaðu í kúlu eða rúllu, settu smá salt og svartan pipar yfir og smávegis af góðri lífrænni extra virgin ólífuolíu.

Þetta er æðislegt með þunnu kexi og góðru rauðvínsglasi sem kvöldhressing. Það má líka setja ostinn í skál og hræra hann í sundur með gaffli og bæta í hann fínt skornu grænmeti eins og tómat og gúrku og þá er kominn fyrirtaks morgunverðarostur á hrökkbrauðið.

Osturinn geymist í 5-6 daga í ísskáp undir plasti.

Njóttu síðasta molans
Það þarf ekki alltaf eitthvað flókið og mikið til þess að njóta stundarinnar.

Trönuberjakaka
Trönuber eru þekkt hollustufæða og ekki er verra ef er hægt að búa til köku úr þeim. Þessi kaka er ekki mjög sæt, en er létt og góð og full af berjum, það er líka hægt að smyrja sneiðarnar eða borða þær með ís og hunangi, ef þú villt sæta köku þá bætirðu við sykri (alls 150-200gr).

Ef þú getur ekki fundið fersk trönuber þá má nota frosin og er þá vatninu í uppskriftinni sleppt, ef þú vilt nota þurrkuð þá þarf að leggja þau í bleyti í heitt vatn amk 1 klst áður en þú bakar og hella svo af þeim vatninu (sleppa þá vatninu í uppskriftinni líka).

Trönuberjakaka

250 gr hveiti

100 gr sykur

2 tsk lyftiduft

1/2 tsk salt

safi og rifinn börkur af 1 appelsínu

4-5 msk vatn

3-4 msk smjör

1 egg, slegið saman

50 gr valhnetur, grófhakkaðar

200 gr trönuber, skorin í tvennt

Undirbúningstími: 30 mínútur

Bökunartími: 45 mínútur

Hitaðu ofninn í 180°C.

Smyrðu jólakökuform að innan með smá smjöri og hristu örlítið hveiti í formið líka.

Settu hveiti, sykur, lyftiduft og salt í skál og blandaðu saman.

Bræddu smjörið í potti og slökktu undir honum, rífðu börk af 1 appelsínu út í pottinn og kreistu safann úr appelsínunni saman við. Settu 4-5 msk af vatni saman við og hrærðu vel. Blandaðu nú egginu út í smjörblönduna og hrærðu vel saman.

Blandaðu eggja/smjörblöndunni saman við þurrefnin og hrærðu þannig að blandist vel saman. Hrærðu þá valhnetunum og trönuberjunum varlega saman við.

Helltu deiginu í mótið, það er svolítið þykkt svo að þú þarft að laga það til þannig að fylli vel út í mótið. Gott getur verið að slá létt í mótið til að fá deigið til að setjast betur út í hornin.

Bakaðu í 45 mínútur, eða þar til þú getur stungið tannstöngli í miðja kökuna og hann kemur hreinn út.

Taktu úr ofninum og látu sitja í 4-5 mínútur, taktu svo úr mótinu og láttu kólna á grind.

Leitin að rétta æfingafélaganum
Það að finna góðan æfingafélaga er spurning um það hvernig þið eigið saman, rétt eins og um ástarsamband væri að ræða. Þar sem þú átt eftir að eyða miklum tíma með æfingafélaganum er full ástæða til að velta fyrir sér nokkrum atriðum áður en þú samþykkir að æfa með nýjum félaga til lengri tíma. Margir ráða sér einkaþjálfara en raunin er sú að hlutverk margra einkaþjálfara felst fyrst og fremst í hvatningu. Með góðum æfingafélaga sem þú átt samleið með geturðu náð sömu eða betri hvatningu.

Hér á eftir koma nokkur ráð sem gott er að hafa í huga þegar æfingafélagi er valinn.

Fylgstu með því hvernig hann/hún æfir:  Æfir hann/hún reglulega, er alvara á ferðum eða er viðkomandi fyrst og fremst að blaðra megnið af tímanum í æfingasalnum? Líkar þér við persónuleika hans/hennar og stóra spurningin er hvort þessi æfingafélagi komi til með að hvetja þig til hins ítrasta. Ef svarið er nei við einhverju af ofangreindu ættirðu að halda leitinni áfram.

Fylgstu með æfingastílnum:  Ef þú ert karlmaður og vilt æfa hratt með stuttum hvíldum á milli lota er ólíklegt að þú getir æft með konu. Tíminn sem fer í að skipta um þyngdir á milli lota verður fljótlega álitinn til ónýtis.

Berðu saman markmiðin:  Ef hún er að æfa til þess að losna við aukakíló af lærum og mjöðmum en þú vilt helst fá vöðvameiri handleggi, er líklegt að sem æfingafélagar verði þið eins og olía og vatn. Reyndu að finna æfingafélaga sem hefur svipuð markmið og þú.

Vertu opinn fyrir ýmsum möguleikum:  Karlar æfa yfirleitt af meiri keppnishörku en konur og eru fljótari að breyta út af réttri framkvæmd einstakra æfinga. Konur leggja meira í að gera æfingarnar rétt og öryggisatriði eru ofar á listanum hjá þeim. Ef bæði eru tilbúin að mætast á miðri leið getur dæmið gengið upp.

Prófið að taka nokkrar æfingar:  Áður en þú samþykktir að leggja út í langtíma æfingaferli með nýjum æfingafélaga ættuð þið að prófa að taka nokkrar æfingar saman. Eitt er víst í því sambandi. Það er að menn læra meira um persónuleika hvers annars og eðli í erfiðum æfingum en hægt er að gera með nokkrum sálfræðiprófum.

Nú í seinni tíma er orðið algengt að konur og karlar æfi saman og fyrir því eru margar ágætar ástæður. Í almennri líkamsrækt er margt sem mælir með að æfa með gagnstæðu kyni. Hvað konu varðar sem byrjar að æfa með karli hefur aukin keppnisharka hans oft í för með sér að æfingarnar verða ákafari. Það kallar á meiri þyngdir en vanalega og oft verða konur undrandi á strengjunum sem þær fá eftir að hafa tekið þunga fótaæfingu t.d. með körlum þar sem 10-20 endurtekningar eru látin duga í stað hundruða fóta eða mjaðmahreyfinga sem konur gera því miður of mikið af í hóptímum með léttar eða engar þyngdir. Karlarnir læra oft þá lexíu þegar þeir æfa með konum að þær geta kennt þeim ýmislegt þegar þol og seigla er annars vegar. Þær virðast oft þola meiri sársauka og geta tekið fleiri aukaendurtekningar en karlar eftir að lyfturnar gerast þungar.

Einar Guðmann

Ritstjóri Fitnessfrétta og fitness.is

Fiskur með marokkósku ívafi
Fiskipottréttur fyrir 4

1 msk olía

1 laukur skorinn í þunnar sneiðar

2 hvítlauksrif, marin

3 tsk engifer, rifinn

1 tsk cumin, malað

1 1/2 tsk túrmerik

4-5 cm kanilstöng

1/2 tsk cayenne pipar

1 dós niðursoðnir tómatar

vatn

1/2 tsk salt

500 gr fiskur, í stórum bitum

1 dós kjúklingabaunir, skolaðar

1 msk hunang

Undirbúningstími: 20 mínútur

Eldunartími: 30 mínútur

Hitaðu olíuna í stórri pönnu við meðalhita, steiktu laukinn í 5 mínútur eða þar til hann fer að verða ljósgullinn. Bættu þá við hvítlauk, engifer, cumin, túrmerik og kanilstönginni og steiktu í 1-2 mínútur eða þar til allt fer að ilma vel. Hrærðu vel í á meðan.

Settu nú cayenne piparinn, tómatana, saltið og  vatn (fylltu tómatdósina). Láttu malla með loki í 10 mínútur.

Skerðu fiskinn í bita og leggðu hann í pönnuna þannig að hann fari á kaf helst. Settu þá lokið aftur á og láttu sjóða í 5-8 mínútur eða þar til fiskurinn er næstum því tilbúinn.
Bættu þá við kjúklingabaununum og hunanginu, hrærðu vel og sjóddu í 2 mínútur í viðbót. Smakkaðu til með salti og pipar.

Með þessu bar ég fram:

KÚSKÚS: Út í kúskúsið saxaði ég 1 þurrkaða gráfíkju, 2 þurrkaðar apríkósur og um 2 msk af granateplafræjum (ég á alltaf granateplafræ í poka inni í frysti til að nota út á rétti eða í salöt)

APPELSÍNUSALAT: Ég flysjaði og skar 1 appelsínu í sneiðar og 1/2 grænt epli, raðaði svo sneiðunum í hring á disk til skiptis. Ég reif yfir þetta smá bita af gulrófu, skar niður nokkrar safaríkar sykurbaunir og dreifði smá ristuðum kókosflögum yfir.
Að lokum stráði ég um 1 tsk nigellafræjum yfir og 1/2 tsk af Sumac. Dásamlega ferskt og gott og passar afar vel með þessum fiskirétti.

Eplasnakk
Eplasnakk

1 epli

2 msk flórsykur

3 msk hlynsýróp

4 msk valhnetur hakkaðar

Undirbúningstími: 5 mínútur

Bökunartími: 70-80 mínútur

Hitaðu ofninn í 90°C á blæstri / 100°C á undir og yfirhita.

Sneiddu eplið niður í ofurþunnar sneiðar, ekki hugsa um að reyna að ná kjarnanum úr, hann skiptir engu máli og steinarnir detta úr.

Settu bökunarpappír á plötu, stráðu 1 msk af flórsykri á hana og raðaðu eplasneiðunum á plötuna þannig að þær snertist ekki. Blandaðu saman 2 msk af hlynsýrópinu og 1 msk af flórsykri og penslaðu eplin með blöndunni.

Settu plötuna inn í ofninn, reyndu að hafa örlitla rifu á ofnhurðinni til að hleypa raka út. Nú eiga eplin að bakast í 45 mínútur eða þar til þau fara að krullast upp á köntunum.

Þá tekurðu þau út úr ofninum og penslar með afganginum af hlynsýrópinu og stráir valhnetunum yfir. Bakar svo aftur í 25-30 mínútur.

Taktu eplin af plötunni og raðaðu þeim á bökunargrind og láttu kólna. Þau verða stökk þegar þau kólna og þá er hægt að borða þau. Þú getur líka sleppt sýrópinu og flórsykrinum, stráð kanil yfir eplin eða smávegis rósmaríni, notað hunang í staðinn fyrir sýróp, eða haft eplin bara eins og þau koma fyrir án nokkurs annars.

Til að varna því að epli skorpni og verði hrukkótt er best að geyma þau í ísskáp í plastpoka sem laust er lokað.

Það er hægt að frysta epli í sneiðum eftir að sjóða þau örsnöggt. Raðið þeim í einfalt lag og frystið, þá er hægt að setja þau í poka og geyma í frystinum.

Ef epli er orðið lint og leiðinlegt þá má flysja það og taka úr því kjarnann, skera í bita og sjóða með örlitlu vatni, hunangi eða hlynsýrópi, og rúsínum.

Æðislegt með hreinni jógúrt.